Opens in a new tab

Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun

Um LYST

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.

LYST

LYST er veitingastaður, kaffihús og vínbar í Lystigarðinum á Akureyri. Við erum opin allt árið og bjóðum upp á gott kaffi, hádegisverð, kvöldverði og spennandi vín í einstöku umhverfi. Hvort sem þú ert á göngu um garðinn, í leit að góðum hádegismat eða vilt eiga notalegt kvöld yfir mat og víni, þá er alltaf gott að koma við á LYST.

LYST opnaði í apríl 2022 að frumkvæði Reynirs Gretarssonar matreiðslumeistara. Reynir hafði áður starfað á veitingastöðum hérlendis og erlendis, meðal annars í Svíþjóð, auk þess að vera framleiðslustjóri hjá súkkulaðigerðinni OMNOM. Hugmyndin var frá upphafi að skapa lifandi veitingastað þar sem góður matur, vandað hráefni og afslappað andrúmsloft færu saman.

Á daginn er LYST kaffihús og hádegisverðarstaður þar sem fiskur og grænmeti eru í aðalhlutverki. Fiskisúpan okkar, ristuðu súrdeigsbrauðin eru meðal þess sem gestir sækja sérstaklega í. Við leggjum áherslu á einfaldan og góðan mat, vandað kaffi og samstarf við framúrskarandi íslenska framleiðendur á borð við Brauð & Co. og Reykjavík Roasters.

Fimmtudaga til laugardaga tekur Dinner á LYST við á kvöldin. Þá bjóðum við upp á afslappaðan kvöldverð með litlum, árstíðabundnum matseðli, evrópskum áhrifum og mikilli áherslu á góða matreiðslu. Náttúruvín skipa stóran sess hjá okkur og vínlistinn samanstendur af vandlega völdum vínum, meðal annars frá framleiðendum sem við flytjum sjálf inn. Þú getur komið í þriggja rétta kvöldverð, valið þér einn eða tvo rétti eða einfaldlega fengið þér glas af góðu víni.

LYST er líka vettvangur fyrir menningu og mannlíf á Akureyri. Frá opnun höfum við haldið tónleika, uppistand og fjölbreytta menningarviðburði. Bjór- og sumarhátíð LYST er einn af stærstu viðburðum ársins, þar sem brugghús, góður matur og tónlistarfólk koma saman í Lystigarðinum.

Við viljum að LYST sé staður sem fólk kemur aftur og aftur á, hvort sem það er fyrir morgunkaffið, hádegismatinn, kvöldverðinn eða góða stund með vinum.

Endilega kíkið við og njótið frábærra veitinga í því einstaka umhverfi sem húsið og garðurinn bjóða, við hlökkum til að taka á móti ykkur!

Húsið

LYST er staðsett í einu af eftirtektarverðustu húsum Akureyrar, í hjarta Lystigarðsins. Húsið var tekið í notkun árið 2012, á 100 ára afmælisári garðsins, og var hannað af arkitektastofunni Kollgátu.

Árið 2013 hlaut húsið tilnefningu til Evrópusambandsverðlauna í samtímabyggingarlist og Menningarverðlaun DV fyrir hönnun sína.
Stórir gluggar og nálægðin við garðinn gera umhverfið að mikilvægum hluta upplifunarinnar á LYST. Hér breytist útsýnið með árstíðunum og alltaf er eitthvað nýtt að sjá.
LYST – Eyrarlandsvegur 30, 600 Akureyri, í Lystigarðinum.
This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.